Á nýjum kennsluvef Tölvunám.is geta umsjónarmenn fyrirtækja valið um tvö kerfi til að fylgjast með notkun starsamanna.
- Umsjónarkerfi með síum, þar þú getu skoðað notkun eftir námskeiði, notendum eða virkni og sent tölvupóst á hóp notenda byggða þessum síum.
- Skýrslur
Umsjónarkerfi með síum
Í umsjónarkerfinu hefurðu yfirsýn yfir heildarnotkun allra notanda á öllum námskeiðum vefsins.
Efst upp sjáum við heildarfjölda aðgangsreikninga fyrirtækis og hversu mörg námskeið starfsmennirnir hafa aðgang að. Hægt er smella á tölunar og opna bakenda vefsins og fá lista yfir alla aðgangsreikninga fyrirtækis og námskeið.
Síur
Þar fyrir neðan geturðu sett inn síur og skoðað framvindu eftir aðgangsreikningum, námskeiðum eða virkni.
Á myndinni hér til hægri hefur verið sett sía á Excel framhaldsnámskeið. Þar sjáum við að helmingur starfsmanna hefur byrjað á námskeiðinu (þrír af sex) og fyrir neðan það sjáum við að af þeim er þriðjungur búinn með minna en 60% af köflunum en hinir tveir þriðju búnir með innan við 20%.
Tölvupóstur eftir virkni
Hægt er að senda tölvupóst á hóp notenda byggða á þessum síum. Þannig er t.d. hægt að senda póst á þá sem eru ekki byrjaðir eða eru stutt komnir í námskeiðunum og hvetja þá áfram.
Skýrslur
Við fáum fáum einnig lista yfir framvindu einstakra notenda í umsjónarkerfinu og sjáum þar hvað þeir eru komnir langt í einstaka námskeiðum. Við stillum í síum hversu marga notendur birtast á síðu.
Þar fyrir neðan er hægt að sækja enn ítarlegri skýrslu í Excel með gögnum um hversu miklum tíma er varið í hverju námskeiði, hvenær notendur byrja á námskeiði, hvenær notendur skráðu sig síðast inn á vefinn og margt fleira.